Text Box:
Text Box: Heim

Um Klúbbinn

Fréttir

Dagskrá

Félagatal

Stjórnartal

Nefndir

Myndir

Ársskýrsla stjórna

Afhverju Lions

Tenglar

Grindavík

Lions  Ræktar - Líknar - Eflir - Fræðir - Leggur lið

Lionsklúbbur Grindavíkur
Text Box: Lionsfundirnir voru í upphafi haldnir á heimili Helga Hjartarsonar.
Mánaborgin var næsti fundarstaður klúbbsins. Nýr matsalur Hraðfrystihúss Grindavíkur var um stutt skeið samastaður fyrir fundina. Kvennó var notað eftir það þangað til litli salurinn í Festi var tilbúinn. Seinna var farið upp í  Veitingahúsið við Bláa Lónið og eftir það niður í Bjálkakofann við Sundlaugina.
 Eiríkur Alexandersson kaupmaður í Eikabúð gaf klúbbnum fullkominn borðbúnað yrir 60 manns. Allur gangur var á eldamennsku. Fyrstu árin sáu Lionsmenn sjálfir um matinn. Kristján níundi á Mánaborginni skaffaði matinn á meðan fundirnir voru þar. Á tímabili fengu þeir matinn úr Keflavík. Það hefur verið svipað fyrirkomulag á matnum síðan fundirnir voru haldnir í Festi. Fyrirlesarar hafa margir komið fram á Lionsfundum góðir og eftirminnilegir. Einn þeirra var Grindvíkingurinn Ísleifur Jónsson frá Einlandi. Ísleifur hélt sína ræðu á Mánaborginni.Hann er verkfræðingur og var í stjórnunarstöðu hjá Orkustofnun.
Ísleifur hafði sérstakan áhuga á hitaveitu fyrir Grindvíkinga. Hreppsnefndin hafði löngu áður látið bora tilraunaholu sunnan við Selhálsinn vegna þess að þá yrði heitavatnið, ef það fengist, sjálfrennandi til Grindavíkur. Hann sagði að tækninni hefði fleygt fram og lýsti þeim möguleikum sem þróun tækninar hefði skapað í þessum efnum og hvatti Grindvíkinga til dáða. Hann sagðist meðal annars alltaf lagt inn umsókn um jarðborinn fyrir hönd Grindvíkinga upp á sitt eindæmi til þess að halda Grindavík alltaf fremst í biðröðinni eftir bornum. Grindvíkingar fengju því borinn nánast strax  þegar þeir vildu. 

“Þetta köllum við að standa undir nafni að vera Grindvíkingur”

Þessi fundur þarna á Mánaborginni hafði afgerandi áhrif til einhuga afstöðu ráðamanna í Grindavík til þessara framkvæmda. Peningar voru auðvitað engir til. 
Eftir að gengið hafði verið frá lánveitingu til framkvæmda var strax hafist handa við undirbúning hitaveitu sem seinna fékk nafnið “Hitaveita Suðurnesja”

Það má í þessu samhengi telja Mánaborgarfundinn formlegt upphaf 
þessa mikla ævintýris.

Kærar þakkir til Boga Hallgrímssonar
Fyrir leiðbeiningar og heimildir.

Um klúbbinn

Fyrsti stofnfundur Lionsklúbbs Grindavíkur haldinn á Helgafelli

Text Box: Stofnun Lionsklúbbs Grindavíkur.


Það mun hafa verið seint á árinu 1964 að félagar í Lionsklúbbi Njarðvíkur með þáverandi formann sinn, Friðrik Valdimarsson í fararbroddi, leituðu eftir því við 
Eirík Alexandersson, kaupmann í Grindavík að hann beitti sér fyrir stofnun Lionsklúbbs.                    Eftir að Eiríki hafi tekist að finna 17 menn, sem áhuga höfðu, var klúbburinn formlega stofnaður       16. febrúar 1965 og nefndur  Lionsklúbbur Grindavíkur.
Auk þeirra 17 félaga, voru mættir þar Þorvaldur Þorsteinsson umdæmisstjóri, ásamt meðstjórnendum sínum Ottó Jónssyni og Guðmundi Guðmundssyni.Frá móðurklúbbnum í Njarðvík, formaðurinn Friðrik Valdimarsson, ásamt sínum meðstjórnendum Halldóri Ingasyni og Þormari Guðjónssyni.Fyrstu stjórn klúbbsins skipuðu Eiríkur Alexandersson formaður, Bogi Hallgrímsson ritari og  Tómas Þorvaldsson gjaldkeri, og var stjórnin endurkjörin fyrsta heila starfsárið 1965 - 1966.

Stofnskrárhátíð Lionsklúbbs Grindavíkur og Lionsklúbbanna í Sandgerði og kjalarnesþingi var haldin á 10. ársþingiLionsumdæmis 109 að Valhöll á Þingvöllum  1. Maí 1965.
Aldrei skrifuðu nema 16 undir stofnskrána þar sem einn hætti um þetta leyti.
Stofnfélagar voru eftirtaldir;
Eiríkur Alexandersson
Bogi Hallgrímsson  Tómas Þorvaldsson
Svavar Árnason  Guðsteinn Eiarsson
Bragi Guðráðsson  Jón Leósson
Halldór Ingvason  Jón Daníelsson
Þórarinn Pétursson  Sr. Jón Árni Sigurðsson
Helgi Hjartarson  Sigurður Þorleifsson
Pétur Antonsson  Einar Kr. Einarsson   Guðbrandur Eiríksson

Í dag er

Klukkan er